Um mig

Ég heiti Elín Sigurðardóttir og skipa 4.sæti á lista Vinstri Grænna í Reykjavík.

Ég er 30 ára gömul og er búsett í Háaleitishverfi ásamt eiginmanni mínum Haraldi Vigni Sveinbjörnssyni tónlistarmanni og dóttur okkar Heklu Björt sem er fædd í júní 2007. Ég er með meistaragráðu í félags- og kynjafræði frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð. Ég starfa nú sem verkefnastjóri atvinnu- og menntamála hjá Klúbbnum Geysi.

Ég hef gengt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Ég hef meðal annars verðið formaður Ungra vinstri grænna í Reykjavík og ritari Vinstri grænna í Reykjavík. Nú gegni ég ýmsum trúnaðarstörfum í borgarstjórnarflokki Vinstri-grænna í Reykjavík en þar sit ég í Mannréttindaráði auk þess sem ég er varamaður í Velferðarráði og Hverifsráði Háaleitis.

Ég legg áherslu á velferð, kvenfrelsi, félagslegt réttlæti og náttúruvernd. Velferðarmál eru mér hugleikin enda eiga allir að geta lifað með reisn í okkar góðu borg það eru sjálfsögð mannréttindi. Auk þess eiga allir borgarbúar rétt á að nýta sér þá þjónustu sem borgin býður upp á s.s leikskólavist fyrir börn sín óháð efnahag. Fátækt á ekki að líðast í okkar samfélagi. Ég tel að velferðar- og grunnþjónusta auk vatns- og orkuauðlinda eigi að vera í samfélagslegri eign. Meginstoðir velferðarkerfisins þurfa að heyra beint undir ríki og sveitarfélög til að tryggja aðgengi allra að því .

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s